
Dökk súkkulaðiterta með skrauti og texta
Fallega skreytt dökk súkkulaðiterta með dökku kremi allan hringinn. Tilvalin í fermingar, útskriftir eða önnur hátíðleg tækifæri.
Almenn lýsing:
Einfaldur súkkulaðitertubotn með dökku súkkulaðikremi, skreytt með marsipanrósum, ferskum berjum, súkkulaðiskrauti.
Stærðir:
- 30 manna, 2600g, 40,5x29cm
- 60 manna, 4500g, 58x39cm
Innihald:
Terta: Sykur, hveiti, flórsykur, kakó, mysuduft, repjuolía, hert repjuolía transfitufrí, kókosolía, smjör, möndlur, egg, vatn, fersk ber,glúkósasíróp, myndbreytt sterkja, kaffi, bindiefni (E471, E481, E466, E412, sojalesitín), sorbitól, invert sykur, lyftiefni (E450, E500), glúten, salt, bragðefni, rotvarnarefni (E211), litarefni(E160a, E171 ásamt fleirum).