Fagnaðu áfangasigri með tertu frá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er alltaf ánægjulegt þegar árangri að settu markmiði er náð og þá er upplagt að nota tækifærið til að fagna honum með bros á vör. Oft liggur mikil vinna að baki slíkum sigrum og okkur hjá Tertugalleríinu finnst tilvalið að fagna þeim með súkkulaðitertu merktri fyrirtækinu eða félaginu þínu. Komdu á óvart með bragðgóðri súkkulaðitertu með merki þíns fyrirtækis eða félags eða þeim skilaboðum sem þú vilt koma á framfæri.

Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar og af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4 x 29cm) og 60 manns (58 x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur. Þessar súkkulaðidásemdir samanstanda af einföldum súkkulaðibotn, ljúffengu brúnu smjörkremi og áprentaðri mynd á marsípan.

Til að gera súkkulaðitertuna persónulegri og í takt við áfangasigur af ýmsu tagi er frábær hugmynd að prenta mynd til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaði, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu smjörkremi á kantinum.

Kynntu þér úrvalið af tertum ásamt öðrum veisluveigum og pantaðu eitthvað ljúffengt til að fagna náðum áfangasigri. Skoðaðu úrvalið hér!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar fermingarveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þið pantið tímalega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →