Fagnaðu alþjóðlega hamingjudeginum með smástykkjum frá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tekur ákvörðun um að ákveðnir dagar, vikur, ár og jafnvel áratugir skuli helgaðir tilteknum málefnum á vettvangi samtakanna.

Hamingja er grundvallarmarkmið mannsins og er alþjóðadagur hamingjunnar tilvalin dagur til að njóta hamingjunnar. Frá árinu 2013 hafa Sameinuðu þjóðirnar haldið upp á þennan jákvæða dag sem leið til að viðurkenna mikilvægi hamingju í lífi fólks á heimsvísu.

Miðvikudagurinn 20. mars er alþjóðlegi dagur hamingjunnar og hvetja Sameinuðu þjóðirnar einstaklinga á hvaða aldri sem er, ásamt öllum kennslustofum, fyrirtækjum og stjórnvöldum að taka þátt í deginum. Af tilefni þessa dags viljum við hjá Tertugalleríinu hvetja alla til að fagna þessum degi og njóta hamingjunnar.

Smástykkin frá Tertugalleríinu eru hamingja í einum bita

Smástykkin frá Tertugalleríinu eru ljúf og sæt hamingja í einum bita og frábær viðbót á alþjóðadegi hamingjunnar. Skoðaðu úrvalið af smástykkjum frá Tertugalleríinu hér!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar fermingarveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þið pantið tímalega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →