Skipulag fyrir stóra daginn

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Brúðkaup er án efa einn stærsti dagur í lífi allra para. Brúðkaupsdagurinn er oftast skipulagður marga mánuði fram í tímann og allir lausir endar hnýttir því allt þarf að vera á sínum stað. Að mörgu þarf að hyggja og umstangið getur verið mismikið, því allt fer það eftir því tilstandi sem tilvonandi brúðhjón ætla að hafa.

Það er líka þörf að ræða tímabilið sem einkennir aðdragandann að stóra deginum, sem getur valdið auka álagi. Við hjá Tertugalleríinu teljum mikilvægt að hefja undirbúning tímanlega. Því meiri tími sem lagður er í undirbúninginn því betra verður skipulagið. Við vitum líka að það er alltaf gott að skipuleggja sig fram í tímann og fá fyrir vikið að njóta í ró og næði þegar nær dregur að ykkar stóra degi.

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar brúðartertur og aðrar veitingar á hagstæðu verði fyrir brúðkaupsveisluna. Við viljum endilega fá að liðsinna ykkur í undirbúningnum með því að létta undir og fækka verkefnum.

Brúðartertan

Það er varla til mikilvægari terta en brúðkaupstertan. Brúðkaupstertan kórónar borðhaldið og gestir bíða spenntir eftir að brúðhjónin skeri saman fyrstu sneiðina og taki þannig eitt fyrsta skrefið saman í nýju hjónabandi. Brúðkaupstertur Tertugallerísins eru gæðatertur sem gleðja bæði augað og bragðlaukana.

Við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á dásamlegar brúðartertur með þrennskonar útlitsgerðum sem eru Lafði Díana, Lafði Kate og Lafði Grace. Brúðarterturnar eru allar gerðar úr súkkulaðitertubotni með unaðslegri súkkulaði-mousse fyllingu, hjúpuðaðar með hvítum sykurmassa og að lokum skreyttar með sykurblómum, ferskum berjum og súkkulaðivindlum.

Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega. Einfaldara getur það ekki verið.

Pantið tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði og við mælum eindregið með því að þið pantið tímanlega.

Athugið að panta þarf brúðartertur með a.m.k. viku fyrirvara. Á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar veisluveigar eru pantaðar!


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →