Alltaf tilefni til að fá sér tertu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Þau eru mörg tækifærin sem gefast til að fagna jafnt stórum sem smáum áföngum í lífinu. Tækifærin eru tilefni og tilefnin eru ástæður jafnt í lífi einstaklinga sem hjá fyrirtækjum. Þegar þú vilt fagna þá er tilvalið að gera það með tertu frá Tertugalleríinu. Þú getur látið útbúa tertuna eftir þínu höfði. Við reynum allt hvað við getum til að láta óskir þínar verða að veruleika.

Þeir sem hafa áður pantað tertur hjá Tertugalleríinu þekkja það mikla úrval af tertum sem við bjóðum upp á.

Það er margt sem hægt er að segja með fallegri tertu. Þú getur látið terturnar tjá ást þína og væntumþykju, fagnað útskrift úr framhaldsskóla eða hverjum þeim áfanga í rekstri fyrirtækja sem ber að fagna.

Þegar Wow air vígði Freyju, nýja Airbus A231-farþegaþotu á Reykjavíkurflugvelli í mars, þá var boðið upp á tertu frá Tertugalleríinu með merki Wow air.

Tækifæristertur Tertugallerísins eru fyrir öll tækifæri og tilefni.

Skoðaðu úrvalið af tertum hjá okkur og pantaðu tertu fyrir þitt tækifæri. Passaðu að panta tímanlega þar sem það getur tekið 2-3 daga að afgreiða pantanir.

Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →