Fréttir — Pantið tímanlega

Þú færð ljúffengar veisluveigar fyrir útskriftarveisluna hjá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Sú árstíð er gengin í garð þar sem útskriftarveislur eru tíðar og við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á fjölbreytt úrval af fallegum og ljúffengum veisluveigum til að fullkomna veisluna þína. Við mælum sérstaklega með marsípantertunum okkar, þær eru eins ljúffengar og þær eru glæsilegar og hægt er að prenta myndir á terturnar og setja á þær texta að eigin vali. Marsípanterturnar eru með svampbotni, frómas-fyllingu og ávöxtum, prýddar fallegum sykur- og súkkulaðiskreytingum og eru fáanlegar í fjórum bragðtegundum; súkkulaði-frómas með kokteilávöxtum, jarðarberja-frómas með jarðarberjum, Irish Coffee-frómas með kokteilávöxtum og karamellu og Daim-frómas með kokteilávöxtum. Form og stærðir marsípanstertanna eru fjölbreyttar...

Lestu meira →

Eyddu tímanum í annað en bakstur!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Afmælisdagurinn er sérstakur dagur hjá mörgum börnum og spenningurinn oft ótrúlega mikill fyrir honum. Margir foreldrar og forráðamenn vilja hafa afmæli barnsins eins eftirminnilegt og hægt er og góður undirbúningur er lykilatriði til að takmarka umstangið í kringum afmælið.  Við undirbúning barnaafmælis er mikilvægt að huga að afmælistertunni en margir kjósa að eyða sínum eigin tíma í annað bakstur og panta sér því tertur og fyrir þessu eru nokkrar ástæður. Fyrir það fyrsta fást tertur á mjög hagstæðu verði. Sem dæmi má taka að einföld afmælisterta með nammi hjá Tertugalleríinu fyrir 15 manns kostar aðeins 3183 krónur. Tíminn getur oft...

Lestu meira →

Veisluveigar fyrir útskriftarveislu!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er góður siður að fagna þegar merkum áfanga er náð og eftir mikla vinnu og álag er gaman að gleðjast með sínum nánustu og eiga góða stund áður en næsti kafli tekur við. Ef þið eruð að skipuleggja útskriftarveislu og eruð að huga að veisluveigunum og þá sérstaklega að brauð- eða smáréttum þá mælum við með klassísku og bragðgóðu brauðtertunum sem slá alltaf í gegn hjá veislugestum. Við hjá Tertugalleríinu bjóðum upp á þrjár mismunandi tegundir af brauðtertum með skinku-, túnfisk- og rækjum. Það er hægt að fá brauðterturnar 16-18 manna, eða 30-35 manna. Rúllutertubrauðin okkar eru líka vinsæl...

Lestu meira →

Við aðstoðum við undirbúning fyrir stóra daginn

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við hjá Tertugalleríinu vitum að verðandi brúðhjón vilja ævinlega þiggja aðstoð við skipulag stóra dagsins, sérstaklega hvað veisluhaldið varðar. Út frá því birtum við færslu þar sem við skrifuðum um skipulagið í aðdraganda stóra dagsins í lífi tilvonandi brúðhjóna og fjölluðum sérstaklega um brúðartertuna sjálfa. Í þessari færslu viljum við leggja áherslu á þær veisluveigar sem eru tilvaldir með fordrykknum eða með brúðartertunni sjálfri. Tilvalið með fordrykknum eða brúðartertunni sjálfri Kransakökurnar okkar eru alltaf sígildar samhliða brúðartertunni eða með fordrykknum í veislunni og við bjóðum upp á nokkrar útfærslur af kransakökunni. Við erum með ljúffenga og fallega skreytta sjö hringja...

Lestu meira →

Bjóddu upp á franska súkkulaðitertu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er alltaf tilefni til að gera sér glaðan dag og fagna hversdagsleikanum eða einhverju sérstöku sem liggur þér eða þínum á hjarta. Við hjá Tertugalleríinu fögnum súkkulaðinu og þá sérstaklega okkar vinsælu frönsku súkkulaðitertu sem hentar flestum tilefnum. Þessi þétta, mjúka súkkulaðiterta er einstaklega bragðgóð og er skreytt með ljúffengu súkkulaðigeli, ferskum bláberjum og jarðarberjum og er fyrir 15 manns. Kynntu þér frábært úrval af tertum og kökum ásamt öðrum veisluföngum hjá okkur í Tertugalleríinu. Ef þig vantar fleiri útgáfur að súkkulaðitertum en þeirri frönsku, skoðaðu endilega á heimasíðunni okkar þær sígildu súkkulaðitertur sem þar eru að finna.  ...

Lestu meira →