Fagnaðu degi menningarinnar með Tertugalleríinu!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu. Þetta er ein af fjölsóttustu hátíðum landsins og hafa um 100.000 manns mætt á hátíðina á hverju ári síðustu ár. Margir leggja hönd á plóg til að gera Menningarnótt sem glæsilegasta.

Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins þar sem skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds. Hátíðin er fyrir alla borgarbúa og gesti sem vilja taka þátt í hátíðinni og skemmta sér. Það er orðin hefð hjá mörgum fjölskyldum og vinahópum að mæla sér mót á Menningarnótt og eiga skemmtilegan dag saman.

Í ár er Menningarnótt í Reykjavík laugardaginn 24. ágúst og algengt er að fólk bjóði gestum og gangandi á tónleika í garðinn sinn eða inn til sín á þessum degi. Við hjá Tertugalleríinu mælum með að þú bjóðir upp á eitthvað bragðgott og ljúffengt frá okkur. Við höfum tekið saman tillögur að einstaklega menningarlegum tertum ásamt öðrum veisluveigum sem tilvalið er að bjóða upp á Menningarnótt.

Marengstertu

Marengstertur þykja sérstaklega hentugar fyrir þá sælkera sem elska stökka áferð sem bráðnar í munni og veitir sælutilfinningu. Við bjóðum upp á þrjár mismunandi bragðtegundir af marengsbombum, hver annarri ljúffengari.

Marengsbomban er einstaklega falleg púðursykurmarengsterta með rjómafyllingu sem er skreytt með marengsbitum, karamellu, súkkulaði og ferskum berjum. Marengsbomban fæst í 15 og 30 manna stærðum. Við hjá Tertugalleríinu heitum þér því að hún mun slá í gegn!

Hrísmarengsbomban okkar er 15 manna bomba úr tveimur lögum af púðursykursmarengs með hrískúlum og vanillurjóma með kokteilávöxtum á milli. Hrísmarengsbomban er síðan hjúpuð með rjómasúkkulaðiganas og toppuð með Nóa kroppi. Þessi bomba er algjör hamingju hvellur hjá þeim sem elska Nóa Kropp!

Banana- og kókosbomban er 15 manna marengsveisla. Þessi ljúffenga terta er í senn stökk og mjúk. Mýktin kemur úr kókossvampbotni með súkkulaði, rjóma og banönum meðan stökki hlutinn inniheldur mulinn púðursykursmarengs með súkkulaðiganas. Þegar kemur að vinsældum banana- og kókosbombunnar á veisluborðinu skiptir aldurinn engu máli!

Frönsk súkkulaðiterta

Við hjá Tertugalleríinu fögnum súkkulaðinu og þá sérstaklega okkar vinsælu frönsku súkkulaðitertu sem hentar flestum tilefnum. Þessi þétta, mjúka súkkulaðiterta er einstaklega bragðgóð og er skreytt með ljúffengu súkkulaðigeli, ferskum bláberjum og jarðarberjum og er fyrir 15 manns.

Farðu yfir úrvalið og pantaðu það sem hugurinn girnist.

Súkkulaðiterta

Góð súkkulaðiterta með nammi er vinsæl að bjóða upp á og eru súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu sígildar, henta flestum tilefnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4x29cm) og 60 manns (58x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur.

Til að gera súkkulaðitertuna þína persónulegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaðikremi, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu ljúffengu smjörkremi á kantinum. Það verður engin svikinn af bragðgóðu súkkulaðitertunum okkar.

Smástykki

Smástykki frá Tertugalleríinu eru ljúf og sæt hamingja í einum bita og frábær viðbót í veisluna þína á degi menningar. Hægt er að velja úr mörgum bragðgóðum og dísætum smástykkjum sem slá alltaf í gegn og þess þá heldur fegra smástykkin öll veisluborð þar sem þau eru borin fram.

Á vefsíðu okkar eru óteljandi tertur og veitingar sem við teljum tilvaldar til að fagna með á degi menningar, en auðvitað er hægt að velja hvað sem er og nota hugmyndaflugið. Skoðaðu endilega fjölbreytta og ljúffenga úrval okkar hér!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga sérstaklega þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →