Ferskbakað til að njóta samdægurs

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Við hjá Tertugalleríinu viljum alltaf bjóða upp á ferskar og bragðgóðar vörur á veisluborðið þitt þannig að þú og gestir þínir fáið að upplifa okkar bestu gæði. Við leggjum því mikla áherslu á að tertur, eins og ferskar matvörur, eru bestar þegar þær eru nýjar – semsagt alveg nýbakaðar.

Allar kökur og tertur Tertugallerísins eru ferskvörur sem þýðir að þær eru bakaðar sama dag og afhending fer fram, svo þeirra megi njóta þegar þær eru ferskastar og með mestu gæðin fyrir bragðlaukana.

Þetta á líka við um brauðterturnar og aðrar brauðvörur frá Tertugalleríinu, því staðreyndin er sú að ferskt brauð í brauðtertum og snittum þornar hratt við geymslu og þar af leiðandi tapast ferskleikinn og gæðin fljótt. Sama á við um terturnar og kökurnar frá okkur.

Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →