Staldraðu við á aðventunni og njóttu samverunnar
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Aðventan er tími sem fyllir hjörtu okkar eftirvæntingu þar sem hátíðlegir siðir minna á að jólin eru á næsta leiti. Þessi árstími getur þó líka verið uppfullur af annríki eins og gjafainnkaupum, undirbúningi og annasömum stundum sem geta yfirskyggt hinn sanna jólaanda.
Það er á þessum árstíma sem við ættum að staldra við og gefa okkur tíma til að njóta samverunnar með vinum og vandamönnum. Samverustundir á aðventunni skapa dýrmætar minningar sem gera hátíðina hlýlega og persónulega. Hvort sem það er með heitu kakói, jólaboðum eða einfaldri gönguferð í vetrarkyrrðinni þá hafa þessar stundir þann töfrandi eiginleika að dýpka tengslin og styrkja samveruna.
Við megum ekki gleyma að jólahátíðin snýst ekki um veraldlega hluti heldur kærleika og gleðistundir. Með því að staldra við og hlúa að þessum gildum sköpum við ekki aðeins ánægjulegri jól heldur líka innra jafnvægi og ró. Aðventan býður okkur tækifæri til að veita okkur og öðrum óskipta athygli, hlýju og umhyggju og það er besta gjöfin sem við getum gefið okkur sjálfum og öðrum.
Tertugalleríið gerir þér einfalt að panta
Það eru margir sem bjóða í aðventukaffi á þessum árstíma og það er frábært tækifæri til að hitta vini og vandamenn í aðdraganda jólanna. Hvort sem það er jólaboð, jólakaffi eða jólahlaðborð framundan hjá þér þá geir Tertugalleríið þér einfalt fyrir að panta veitingar fyrir hvaða tilefni sem er. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, því möguleikarnir eru nánast endalausir.
Njóttu samverunnar á aðventunni því Við hjá Tertugalleríinu erum ávallt tilbúin að liðsinna þér. Hjá okkur færðu ljúffengar tertur og kökur af ýmsu tagi sem henta flestum tilefnum.
Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta.
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugallerí hefur í mörg ár boðið frábærar og ljúffengar veisluveigar á hagstæðu verði. Við mælum eindregið með því að þú pantir tímanlega. Á miklum álagstímum, eins og fyrir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar þínar. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.
Deila þessari færslu
- Merki: Aðventan, Aðventukaffi, Samvera, Samverustundir, Tilefni, Þitt eigiðtilefni