Fréttir — Tilefni
Erfidrykkjur
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Það er fallegur siður að minnast vina og ættingja sem fallið hafa frá með erfidrykkju eftir að ástvinurinn hefur verið kvaddur. Í huga margra er erfidrykkjan mikilvægur hluti af kveðjuathöfninni því þar kemur fólk saman til að minnast hins látna og votta hvert öðru samúð. Þau sem hafa séð að baki fjölskyldumeðlimum eða nánum vinum þekkja sorgina sem fylgir því að kveðja nákominn ástvin og þekkja jafnframt líka umstangið sem getur fylgt því að fylgja þeim síðasta spölinn. Eitt af því sem tekur tíma við undirbúning útfarar er skipulagning erfidrykkju og það getur verið erfitt að velja veitingar í erfidrykkjuna....
- Merki: Brauðterta, Erfidrykkja, Erfisdrykkja, Kleinur, Marsípanterta, Mini möndlukökur, Tilefni, Þitt eigið tilefni
Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veitingar hratt og vel fyrir hvaða tilefni sem er
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Tertugalleríið gerir þér einfalt fyrir að panta veitingar hratt og vel fyrir hvaða tilefni sem er. Það eina sem þú þarft að gera er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn, því möguleikarnir eru nánast endalausir. Á vefsíðu Tertugallerísins finnur þú allar upplýsingar sem þú þarft fyrir pöntunarferlið og ef frekari spurningar vakna getur þú alltaf haft samband við okkur í tölvupósti, símleiðis eða á Facebook. Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, allt til að aðstoða þig á sem bestan máta. Þegar góða veislu gjöra skal erum við hjá Tertugalleríinu ávallt tilbúin að liðsinna þér. Hjá okkur...
Makkarónukökur á veisluborðið þitt
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Makkarónukökur má iðulega sjá á veisluborðum í mörgum boðum og veislum. Þær eru litríkar og fallegar í laginu og bráðna í munni. Þess heldur eru þær frábær viðbót með öðrum veisluveigum og eru dásamlega fallegar á veisluborðum. Hjá Tertugalleríinu getur þú pantað ljúffengar og fallegar makkarónur sem eru tilvaldar fyrir þitt einstaka tilefni og gleðistundir. Makkarónurnar koma 35 stykki saman á bakka og eru með sex ljúffengum bragðtegundum: sítrónu-, saltkaramellu-, hindberja-, vanillu-, súkkulaði-, pistasíu-, kaffi- og ástaraldinbragði. Við viljum benda á að makkarónur eru litlar, dísætar og viðkvæmar og því skiptir máli hvernig þær eru meðhöndlaðar. Þær þurfa að...
- Merki: Makkarónukökur, Makkarónur, Tilefni, Veisla, Veisluborð, Þitt eigið tilefni
Súkkulaðiterta fyrir bekkjarafmælið
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Afmælisdagurinn er sérstakur dagur hjá mörgum börnum og spenningurinn oft ótrúlega mikill fyrir honum. Margir foreldrar og forráðamenn vilja hafa afmæli barnsins eins eftirminnilegt og hægt er og góður undirbúningur er lykilatriði til að takmarka umstangið í kringum afmælið. Núna þegar haustið er komið og skólarnir byrjaðir eru foreldrar og forráðamenn oft að huga að bekkjarafmælum. Við hjá Tertugalleríinu fáum mikið af fyrirspurnum um vinsælar afmælistertur hjá yngri kynslóðinni og bendum við þá sérstaklega á súkkulaðiterturnar okkar, því hjá okkur eru allir afmælisdagar súkkulaðidagar. Við hjá Tertugalleríinu vitum að það er að mörgu að huga þegar kemur að skipulagningu...
- Merki: Afmæli, Afmælisterta, Afmælistertur, Bekkjarafmæli, Súkkulaitertur, Súkkulaðiterta, Tilefni, Þitt eigið tilefni
Er skírn eða nafngjöf framundan?
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Það er merkur áfangi í lífi hvers barns að skírast eða vera gefið nafn og er oft talað um að skírnin eða nafngjöfin sé einn af fallegustu viðburðum í lífi nýbakaðra foreldra og fjölskyldna þeirra, enda er þá kunngjört hvað barn þeirra á að heita. Athöfnin fer yfirleitt fram í kirkju, sal eða heimahúsi og hefur ýmis konar merkingu í samfélaginu. Fyrir mörgum er þetta mikilvæg stund og ákveðin tímamót þar sem lítið barn er í fyrsta skipti kynnt með nafni fyrir fólkinu sínu. Trúarleg skírn Í stærstu og elstu kirkjudeildum kristinnar trúar eru börn oftast skírð á fyrsta aldursári...
- Merki: kökur, nafngjafarterta, nafngjafartertur, Nafngjöf, Skírn, skírnarterta, skírnartertur, Tertur, Tilefni, Veisluveigar, Veitingar, Þitt eigið tilefni